Nú
er komið að þessu gott fólk
Þann 20-21 júlí 2007 verður okkar fyrsta árgangsmót haldið á
Siglufirði, Og hér fyrir neðan verður birtar upplýsingar og dagskrá
sem verður sent út í öll hús.
Mótið verður auglýst sem makalaust árgangsmót 2007. Samt sem
áður er sumt sem er opið fyrir þá sem vilja koma með maka norður á
Sigló til kynna fyrir þeim menningu sem þar hvílir.
Bjórkvöldið á Allanum
Ballið sem verður haldið á laugardagskvöldið
(eftir matinn)
Allt annað sem er kynnt í dagskránni er
makalaust
Dagskráin
fyrir Bekkjarmót 2007
Mótið verður opnað
á föstudagskvöldinu með bjórkvöldi á Allanum kl 20:00
þar sem verður tekið létt á
því
Laugardags
Dagskrá
Kl 10:00: Farið
verður í pottinn í sundlaugini
Allavega fyrir þá sem eru ekkert svakalega þunnir eftir
föstudagskvöldið
12:00: Hádegismatur
á Pizza 67
13:00: Hittingur á
torginu og þar verður ræst Siglo Race.
Rat/þrautaleikur í anda Amacing
Race
16:00: Kaffi og
kleinur á pallinum á allanum
Eftir kaffið verður
gert smá hlé á dagskrá svo
fólk geti farið heim og gert sig sæt og fín fyrir
kvöldverð.
19:00: Verður
snæddur kvöldverður á Suðurgötu10
( leikfélag
Siglufjarðar er þar til húsa )
Kvöldverðurinn
verður haldinn þar til að spara drykkjar kostnað
en þá þurfa allir að mæta með
sitt eigið áfengi á staðinn, blandið verður á staðnum.
Verðlaunaafhending
fyrir ratleikinn fer þar fram.
Eftir kvöldverðinn
verður ball á Allanum
Þar sem við endum
mótið með dans og tjúll fram á nótt.
Ásamt bréfinu verður reikningur sem fólk getur borgað til að
staðfesta komu sína á árgangsmótið, en einnig verður hægt að
millifæra beint inn á þetta númer
1152-15-200061
kt:1302803669.
Hafa í huga að það
standi Ína Sif Stéfansdóttir sem viðtakandi
Þeir sem millifæra
áður en bréfið kemur til húsa eru beðnir að hunsa þann
reikning sem fylgir því.
Þeir sem hafa áhuga á
að mæta á okkar fyrsta árgangsmót eru beðnir að greiða staðfestinga
gjaldið fyrir 18 Maí.
Staðfestingagjaldið er
aðeins
5500 kr
Nokkrir punktar:
-
Allur matur sem er auglýst í dagskránni er innifalinn í gjaldinu,
þannig fólk þarf aðeins að greiða sín eigin drykkjarföng sem þið
ætli að innbyrða um þessa helgi. Því
verður fólk einnig að muna eftir sínum drykkum á
kvöldverðinn, en nefndin mun sjá um að koma með
gos.
- Þetta er ekki fastur tími á
bjórkvöldið sem er auglýst í dagskránni, aðeins húsið opnar á
þessum tíma en fólk mætir bara þegar það er komið í bæinn og er
búið að snyrta sig.
-
Aðgangseyri fyrir
laugardagssundið er ekki innifalinn í gjaldinu.
- Innifalið í gjaldinu er
aðgangur á laugardagsballið.
Kv Ingvar Leósson